Engar markverðar breytingar eru á aldri þeirra íslensku ríkisborgara sem flytja til og frá landinu. Hagstofan hefur borið saman hlutfall áranna 1986 til 2014 og komst að þeirri niðurstöðu að aukinn fjöldi brottfluttra er ekki umfram það sem telja má eðlilega sveiflu miðað við fyrri ár.

Ekki sést neinn munur sé horft til þeirra sem eru yngri en 40 annars vegar og eldri en 45 hins vegar. Þess þá heldur sjást engar vísbendingar um breytta búferlaflutninga þeirra sem eru 20–24 ára eða 25–29 ára. Einu marktæku niðurstöðurnar taka til aldurshópsins 40–44 ára sem eru hreyfanlegri síðustu ár (2009–2015) en áður hefur sést. Árið 2015 fluttu marktækt fleiri í þessum aldurshópi til Íslands en áður og lítillega fleiri fluttu brott. Eftir hrunið 2008, einkum frá árinu 2010, má almennt greina meiri hreyfanleika fólks á aldrinum 40–60 ára bæði í brottflutningi og aðflutningi eins og sést á myndum.