Upplýsingavefur Stjórnarráðsins er aðskilin öðrum gögnum Stjórnarráðsins og því voru engin trúnaðargögn í hættu þegar tölvuhakkarar gerðu árás á vefsíður allra ráðuneytanna í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Stjórnarráðið hefur verið meðvitað um að utanaðkomandi árásir sem þessar gætu átt sér  stað og m.a.  þess vegna hafa upplýsingar sem ávallt eru aðgengilegar almenningi á opnum upplýsinga- og fréttavefjum verið kirfilega aðskildar frá öðrum gögnum ráðuneyta.  Við höfum verið og erum sífellt að vinna að því að efla gagnaöryggi enn frekar og það er nú sem fyrr gert með hópi sérfræðinga á þessu sviði. Það er miður að þessi upplýsingavefur hafi legið niðri tímabundið vegna þessa“, segir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Umrædd árás beindist að netþjónum vefja ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands en engin gögn voru í hættu að því er kemur fram í tilkynningunni. Vefirnir innihalda gögn og upplýsingar sem eru þegar aðgengileg almenningi. Þeir voru hafðir lokaðir þar til ljóst var að ástandið var komi aftur í eðlilegt horf á tíunda tímanum í morgun. Upplýsingasíður Stjórnarráðsins eru nú komnar aftur í eðlilegt horf og aðgengilegar notendum.