Englandsbanki, seðlabanki Englands, ákvað í gær að hækka stýrivexti um 0,25%, upp í 0,75%, en vextir hafa verið rétt við núllið frá fjármálakrísunni 2008. Þetta er aðeins í annað skiptið sem þeir eru hækkaðir síðan. BBC segir frá .

Mark Carney, seðlabankastjóri, boðaði „hóflegar“ og „stigvaxandi“ hækkanir á næstunni.

Sparifjáreigendur verða eflaust glaðir, en þær 3,5 milljónir manns sem eru með breytilega vexti á húsnæðislánum sínum fagna kannski síður, þar sem vextir þeirra munu hækka.

Efasemdaraddir heyrðust úr viðskiptalífinu, um að aðdragandi Brexit væri besti tíminn til að hækka vexti, en Carney sagði bankann tilbúinn til að lækka þá aftur ef þörf kræfi.