Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,13% í dag og endaði í 1800,90 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,23% frá áramótum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,05% í viðskiptum sem hljóða upp á 670 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 32,95 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 1% í viðskiptum upp á 204milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 248 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,9 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,1% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,6% í dag í 3,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,7% í 0,9 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 2,2 milljarða króna viðskiptum..