Frystitogarinn Örfirisey RE er nú í höfn í Hammerfest í Norður-Noregi en þangað kom togarinn um helgina eftir að vart varð við enn eina bilunina í vélbúnaði skipsins. Sá frystitogarinn Kleifaberg ÓF um að draga Örfirisey til hafnar, að því er fram kemur í frétt HB Granda.

Í fréttinni segir:

Herbert Bjarnason, tæknistjóri skipa HB Granda, segir nú ljóst að eitthvað hafi misfarist þegar aðalvél Örfiriseyjar var tekin upp á vegum framleiðenda vélbúnaðarins fyrir áramótin. Það skýri einnig bilunina sem varð fyrir rúmri viku síðan.

Herbert segir að skipið hafi þá verið statt um 30 sjómílur norður af Hammerfest í Noregi og hafi Kleifabergið verið fengið til að draga skipið upp að landi þar sem dráttabátur tók við því og fór með það til hafnar í Hammerfest.