Mál Atlantsolíu gegn Landsbankanum vegna gengisláns verður endurflutt fyrir Hæstarétti kl. 13 í dag.

Máið var upphaflega flutt í Hæstarétti þann 10. september sl. en er nú endurflutt af beiðni réttarins. Dómurum málsins hefur verið fjölgað úr þremur í fimm en slíkt er til marks um að dómurinn telji málið varða mikla hagsmuni og sé mögulega fordæmisgefandi.

Í fréttatilkynningu frá Félagi atvinnurekanda er sagt að málið varði hvort að aðstöðumunur hafi verið á milli Atlantsolíu og Landsbankans. Talið er að ef þessi aðstöðumunur sé til staðar þá hafi Landsbankanum verið óheimilt að krefja Atlantsolíu um viðbótarvexti af gengisláni sem þeir voru með hjá Landsbankanum.

Í tilkynningunni er tekið fram að málið geti verið fordæmisgefandi og varð gríðarlega hagsmuni fyrir fyrirtæki af svipaðri stærð og Atlantsolía, en ef Atlantsolía verði talin of stórt fyrirtæki til að fá viðbótarvextina endurgreidda gæti það haft fordæmi fyrir fyrirtæki af svipaðri stærð.