Gengisáhrif krónunnar til lækkunar á erlendum eignum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna námu 21,2 milljörðum króna á árinu 2016. Þetta kom fram í máli Guðmundar Þ. Þórhallssonar framkvæmdastjóra sjóðsins þegar hann flutti yfirlit um afkomuna á árinu 2016 á ársfundi sjóðsins í gærkvöldi.

Fram kom í máli hans að sjóðurinn nýtti til fulls allar gjaldeyrisheimildir Seðlabankans á árinu 2016 til kaupa á erlendum eignum, að því er segir í fréttatilkynningu frá sjóðnum.

Með því hafi verið fylgt fjárfestingarstefnu sjóðsins um aukna dreifingu eigna og fjárfestingu til langs tíma. Erlend verðbréfaeign sjóðsins nam um 159 milljörðum króna í lok ársins, en var um 153 milljarðar í árslok 2015.

Raunávöxtun innlendra bréfa 18%

Guðmundur sagði að þótt árið 2016 hafi verið sjóðnum mótdrægt væri langtímaávöxtun góð eins og endurspeglaðist í sterkri tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins, sem er jákvæð um 4,2%.

Hann tók sem dæmi að frá því í árslok 2009 hafi meðal raunávöxtun á ári af skráðum innlendum hlutabréfum sjóðsins numið 18% og að árleg meðalraunávöxtun allra eigna undanfarin 20 ár sé 4,4%.

Hrein eign Lífeyrissjóðs verzlunarmanna til greiðslu lífeyris var í árslok 2016 602 milljarðar og hafði hækkað um 19 milljarða á árinu.