Lánasjóðurinn Framtíðin er nútímalegt fjármálafyrirtæki sem starfar á íslenskum lánamarkaði. Fyrirtækið hefur frá árinu 2015 boðið upp á námslán, en á þessu ári bættust húsnæðislán og almenn lán við vöruframboð fyrirtækisins. Vextir Framtíðarinnar eru sérsniðnir að aðstæðum lántaka og fyrirtækið starfar eingöngu á netinu. Stefnt er að því að útvíkka starfsemina á komandi misserum.

„Við bjóðum upp á nýjar vörur fyrir neytendur á íslenskum lánamarkaði,“ segir Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar. „Við reynum að skynja eftirspurnina og koma með það sem ekki er í boði á markaðnum. Þá viljum við að þjónustan okkar sé einföld og þægileg. Starfsemi okkar er eingöngu rafræn. Við styðjumst við heimasíðuna okkar og nýjungar í tækni á borð við rafræn skilríki. Svo metum við umsóknir út frá ýmsum gögnum og bjóðum upp á lán sem eru sérsniðin að aðstæðum lántaka.“

Lánasjóðurinn er fyrst og fremst fjármagnaður af skuldabréfasjóðum GAMMA Capital Management.

Brúa bilið

Framtíðin hefur frá árinu 2015 boðið námsmönnum upp á framfærslu- og skólagjaldalán.

„Við sáum að það var vöntun á lánum fyrir námsmenn sem gátu ekki fengið lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN). Fólk vantar oft lán til viðbótar við námslánið frá LÍN, hvort sem um er að ræða nám á Íslandi eða erlendis. Svo eru fjölmargir sem hafa verið á vinnumarkaði og setjast aftur á skólabekk, en eiga erfitt með að fá lán vegna tekjuskerðingar LÍN.

Þarna sáum við markað. Við komum með viðbótarlán og þá nýjung að fólk þurfi ekki að byrja að greiða niður lánið fyrr en sex mánuðum eftir námslok og getur greitt það til baka á 12 árum. Við metum einnig lánshæfi umsækjenda út frá námsárangri, lánshæfismati, framtíðaráætlunum og fleiri þáttum. Þetta er því sérsniðin vara fyrir námsmenn,“ segir Hrólfur, en Framtíðin hefur lánað til um það bil 500 námsmanna síðan 2015.

Þá hefur Framtíðin þróað nýjar vörur sem kynntar voru til leiks á þessu ári.

„Á þessu ári fórum við að bjóða upp á almenn lán og húsnæðislán. Almennu lánin eru óverðtryggð og ekki tryggð með veði. Við ákveðum vextina og lánsupphæð út frá lánshæfiseinkunn CreditInfo. Það er nýjung á íslenskum lánamarkaði en ákvörðun vaxta samkvæmt lánshæfiseinkunn er eitthvað sem er algengt erlendis.

Síðan leituðum við að einhverju sem var ekki í boði á íbúðalánamarkaðnum, eins og viðbótarlán. Fólk getur fengið lán hjá lífeyrissjóði sem er 75% af kaupverði fasteignar og fengið restina hjá okkur, en við bjóðum upp á lán sem eru 90% af kaupverðinu. Þetta er nýjung, því við bjóðum upp á stök viðbótarlán óháð því hverjir eru að lána á fyrsta veðrétti. Svo er það önnur nýjung að vextirnir á húsnæðislánunum, sem eru verðtryggð og til allt að 25 ára, ráðast af því hvað þú leggur fram mikið eigið fé. Vextirnir lækka eftir því sem lántakandi leggur fram meira eigið fé,“ segir Hrólfur.

Nánar er rætt við Hrólf Andra í Frumkvöðlum , tímariti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .