Eva Hlín Dereksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Raftákns verkfræðistofu frá 1.febrúar n.k. Fráfarandi framkvæmdastjóri er Árni V. Friðriksson, en hann hefur gegnt starfinu um árabil og lætur af störfum vegna aldurs.

Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa en helstu verkefni hennar tengjast hönnun raflagna og lýsingar, stýringum og sjálfvirkni.
Stjórn Raftákns er afar ánægð með að fá Evu Hlín til að leiða fyrirtækið í þeim tæknibreytingum sem nú eiga sér stað að því er kemur fram í tilkynningu.

Eva Hlín lauk M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Washington árið 2002 og Cand.Sc. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2000.  Hún stundar nú MBA nám með vinnu við Háskóla Íslands.

Eva Hlín hefur starfað sem verkefna- og vörustjóri hjá Wise síðan 2010 en þar áður sem verkfræðingur hjá Nobex og Samskipum. Hún er fædd árið 1977, gift Ágústi Torfa Haukssyni og eiga þau þrjár dætur.  Þau búa á Akureyri en Raftákn er með starfsemi bæði á Akureyri og í Reykjavík.