Janusz Korwin-Mikke, þingmaður á Evrópuþinginu, ávarpaði þingið og þar staðhæfði að konur ættu skilið að fá lægri laun þar sem þær væru; veikburða, minni og heimskari. Hægt er að sjá myndband CNN af atvikinu hér.

Ræða Korwin-Mikke féll í grýttan jarðveg og svaraði Iratxe García Pérez, Evrópuþingmaður frá Spáni, þingmanninum fullum hálsi. „Samkvæmt kenningu þinni, ætti ég ekki rétt á því að vera hér, sem meðlimur Evrópuþingsins. Ég veit að það særir þig og veldur þér áhyggjur - að konur geta setið hér og unnið sem fulltrúar evrópskra ríkisborgara, með sömu réttindi og þú,“ sagði García Pérez.

Hún bætti við að hún væri á þinginu til að verja alla Evrópubúa frá konum og mönnum eins og þér. Við það upphófst klapp í þinginu.