Eygló Þóra Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins hefur sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis að hún muni ekki bjóða sig fram fyrir komandi kosningar. Ein ástæðan segir hún að nú sé hún búin að sitja í 9 ár á þingi en hún hafi sjálf talað fyrir stjórnarskrárbreytingum um 8 ára hámark þingsetu. Eitt ár er síðan síðast var kosið.

Aðrir þingmenn sem gefið hafa út að muni ekki bjóða sig fram að nýju eru Birgitta Jónsdóttir þingflokksformaður Pírata og Theodóra Þorsteinsdóttir sem lét vita í lok ágúst að hún hygðist einungis sitja til áramóta.

Vonast eftir bjartsýnni kosningabaráttu

„Það er von mín að komandi kosningabarátta verði jákvæð og heiðarleg og að samvinnuhugsjón Framsóknarflokksins muni þar ná góðum hljómgrunni,“ segir Eygló af bjartsýni í lok yfirlýsingarinnar.

„Í nóvember 2008 tók ég sæti á Alþingi fyrir hönd Framsóknarflokksins við erfiðar aðstæður í miðju bankahruni.  Árin síðan hafa verið einstaklega viðburðarrík og árangurinn af vinnu við efnahagslega endurreisn íslensks samfélags hefur verið mikill.

Þar hef ég verið stolt af baráttu okkar framsóknarmanna gegn skuldum, hvort sem það eru skuldir heimilanna eða sá skuldaklafi sem erlendir kröfuhafar vildu hengja á þjóðarbúið. Ég er jafnframt einkar stolt af að hafa sem félags- og húsnæðismálaráðherra komið á nýju húsnæðiskerfi, bætt hag lífeyrisþega og unnið gegn ofbeldi í íslensku samfélagi.

Ég hef lengi verið sannfærð um að þingmennska á ekki að vera ævistarf og talað fyrir stjórnarskrárbreytingum um að hver þingmaður sæti ekki lengur en átta ár samfellt á Alþingi. Í nóvember 2017 verða þau ár orðin níu hjá mér.  Því tel ég rétt á þessum tímapunkti að láta staðar numið og leita nýrra og skemmtilegra ævintýra á öðrum vettvangi.

Því mun ég ekki gefa kost á mér til þingstarfa fyrir Alþingiskosningarnar þann 28. október næstkomandi.“