Eyja fjárfestingafélag hagnaðist um 776 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 1,2 milljarða króna hagnað árið á undan.

Félagið er í eigu Eyglóar Kjartansdóttur sem situr í stjórn félagsins ásamt eiginmanni sínum Birgi Bieltvedt.

Mest munaði um tekjur af sölu Domino‘s á Íslandi til Domino‘s á Bretlandi, en bókfærður hagnaður vegna Domino‘s á Íslandi nemur 907 milljónum króna.

Eigið fé Eyju nam 2,7 milljörðum króna um áramótin en það á meðal annars meirihluta í veitingastöðunum Joe & the Juice á Íslandi, Kaffi París, Brauð og Co., Snaps og Gló.