Eyjólfur Árni Rafnsson, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Samtaka atvinnulífsins. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu samtakanna.

Nýr formaður verður valinn í aðdraganda aðalfundar SA þann 29. mars næstkomandi með rafrænni kosningu meðal aðildarfyrirtækja samtakanna.

Eyjólfur Árni hefur setið í stjórn Samtaka atvinnulífsins frá 2014 og í framkvæmdastjórn samtakanna síðastliðið ár. Frá árinu 2014 hefur hann átt sæti í stjórn Samtaka iðnaðarins og jafnframt verið varaformaður SI.

Eyjólfur Árni er húsasmiður að mennt og lauk síðar doktorsnámi byggingarverkfræði. Hann hefur undanfarin 20 ár verið í stjórnunarstörfum í íslensku atvinnulífi. Hann var forstjóri Mannvits hf. og forvera þess félags í 12 ár til ársloka 2015. Frá 2016 hefur Eyjólfur Árni sinnt ýmsum ráðgjafa- og stjórnarstörfum.

Eyjólfur Árni er fæddur árið 1957 og er kvæntur Egilínu S. Guðgeirsdóttur og eiga þau fjóra uppkomna syni.