Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg, hefur ákveðið gefa kost á sér í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Eyþór tilkynnti þetta á Facebook. Frestur til að skila inn framboði í leiðtogakjörið rennur út á morgun.

„Það er erfitt fyrir ungt fólk að eignast fyrstu íbúð í Reykjavík," skrifar Eyþór á Facebook. „Framboð á húsnæði er takmarkað og þess vegna er verðið hátt. Þétting byggðar á einstökum reitum hefur í raun skilað sér í hærra verði og dreifðari byggð á höfuðborgarsvæðinu. Raunfjölgun íbúða er lítil sem engin þegar tekið er tilliti til útleigu til ferðamanna.

Lestrarkunnáttu barna hefur hrakað í grunnskólum samkvæmt nýlegum rannsóknum. Reykvísk börn eiga betra skilið.

Reykjavík er í miklum vanda í samgöngumálum og dýrar lausnir eins og Borgarlína munu auka á vandann með enn meiri þrengslum í gatnakerfinu. Reykjavík á að vera í fararbroddi í nútímalegum samgöngum en festast ekki í dýrum og þunglamalegum lausnum. Þrengingarnar hafa nú þegar búið til kransæðastíflu í gatnakerfi borgarinnar.

Stjórnkerfið hefur stækkað mikið og er dýrt í rekstri. Auk þess er flóknara en áður fyrir íbúa að fá lausn sinna mála. Það er því tækifæri að gera betur og breyta um stefnu í borgarstjórnarkosningunum næsta vor.

Ég hef einlægan áhuga á að vinna fyrir fólkið sem býr í borginni við sundin. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ef þú ert sammála því að við getum gert betur trúi ég að við getum átt samleið í að bæta borgina okkar allra."