Fossar markaðir hf. hafa fengið aðild að kauphöllum Nasdaq í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Með því eru Fossar fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið í meira en áratug til að tengjast erlendum kauphöllum beint með þessum hætti að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Fyrirtækið getur frá og með næstkomandi mánudegi, 17. september, átt bein og milliliðalaus viðskipti með öll verðbréf sem skráð eru í Nasdaq Copenhagen og Nasdaq Stockholm kauphallirnar. Markaðsviðskipti hafa frá stofnun Fossa markaða árið 2015 verið kjarnastarfsemi fyrirtækisins segir þar jafnframt.

Síðan hafa fyrirtækjaráðgjöf og sértæk þjónusta við fagfjárfesta bæst við starfsemina samhliða uppbyggingu á þjónustu fyrir viðskiptavini á mörkuðum víðs vegar um heiminn.

Fossar eru með aðgang og samstarfssamninga við erlendar sjóðastýringar og greiningarfyrirtæki, auk aðgangs að fjárfestingakostum út um allan heim hvort sem það er beinn markaðsaðgangur að kauphöllum eða aðgangur að sjóðastýringum.

Haraldur Þórðarson , forstjóri Fossa markaða segir fjármálafyrirtækið nú vera komið með starfsemi sem segja megi að sé á alþjóðavísu.„Með aðild að kauphöllum Nasdaq í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi eflum við þá starfsemi enn frekar og getum nú þjónustað viðskiptavini okkar, jafnt innlenda sem erlenda, enn betur á mörkuðum á Norðurlöndum,“ segir Haraldur.

„Þetta er góð viðbót við þann víðtæka aðgang sem Fossar hafa að mörkuðum út um allan heim. Í gegnum Fossa fá viðskiptavinir aðgang að fjölbreyttum fjárfestingakostum og alla þjónustu á einum stað.“

Sylvester Anderse n, sölustjóri Nasdaq Copenhagen óskar félaginu til hamingju með aðganginn: „Um ákveðin tímamót er að ræða því þetta eru fyrsta kauphallaraðild íslensks fjármálafyrirtækis á erlendum markaði í áratug eða svo. Við hlökkum til þjóna íslenskum fjármálamarkaði í áframhaldandi þróun markaðarins og efla þessi mikilvægu tengsl enn frekar.“