Félag atvinnurekenda fagnar því að í fjárlagafrumvarpi næsta árs sé kveðið á um afnám tolla af fötum og skóm um áramót. Ennfremur fagnar stjórn FA áformum stjórnvalda um að afnema fleiri tolla á næsta ári. Aftur á móti harmar félagið að ekki sér gert ráð fyrir lækkun á tryggingagjaldi umfram þá litlu breytingu sem áður hafði verið ákveðin. Þetta kemur fram í frétt á vef félagsins.

Þar segir að tollalækkunaráform stjórnvalda eru mikilvægt framhald þess afnáms vörugjalda sem hófst um síðustu áramót og stórt skref í átt til þess að efla frjálsa milliríkjaverslun. FA hvetur til þess að þessi áform nái til alls innflutnings, og að einstökum atvinnugreinum sé ekki hlíft við þeirri samkeppni sem felst í viðskiptafrelsi.

Stjórn FA skorar á ríkisstjórnina að endurskoða þá afstöðu sína að viðhalda tollum á ýmsar innfluttar matvörur. Matartollarnir hækki vöruverð í landinu og verndi óhagkvæmar búgreinar fyrir erlendri samkeppni, sem myndi hvetja til hagræðingar og vöruþróunar.

Hátt tryggingagjald stuðlar að atvinnuleysi

Þá harmar stjórnin að ekki sé gert ráð fyrir lækkun á tryggingargjaldi umfram þá litlu breytingu sem áður hafði verið ákveðin, en tryggingagjaldið mun lækka um 0,14 prósentur samkvæmt lögum sem tóku gildi árið 2013.

„Það er ekki í samræmi við fyrri ummæli fjármálaráðherra um að hann vildi leita leiða til að flýta lækkun tryggingagjalds. Háir launaskattar á borð við tryggingagjaldið draga úr getu fyrirtækja til að greiða hærri laun eða bæta við sig fólki,“ segir á vef félagsins.

Segir FA að hátt tryggingagjald stuðli því í raun að auknu atvinnuleysi og torveldi fyrirtækjum að taka á sig þær byrðar sem felist í nýgerðum kjarasamningum. Frekari lækkun tryggingagjalds myndi örva atvinnulífið og skila ríkissjóði talsverðum tekjum í stað þeirra sem töpuðust með því að lækka hlutfall þessa tiltekna skatts.