Laun félagsmanna aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu verða hækkuð um 1,3 prósent að meðaltali og verður hækkunin afturvirk frá 1. janúar 2017.

Ætti hækkunin að koma til framkvæmdar um næstu mánaðamót hjá félagsmönnum flestra aðildarfélaga að því er segir á vef BSRB . Samkomulagið um launaþróunartryggingu opinberra starfsmanna sem eru félagar í aðildarfélögum bandalagsins var undirritað í desember síðastliðnum.

Í rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2015 er kveðið á um að þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði bætt það launaskrið sem verður á almenna vinnumarkaðinum umfram það sem kann að verða á opinbera markaðinum. Aðild að samkomulaginu eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins.

Ætlað að tryggja sömu þróun á almenna og opinbera vinnumarkaðinum

„Þetta er auðvitað stór áfangi fyrir okkar félagsmenn og jákvætt að þetta sé nú í höfn,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. „Ákvæðinu um launaþróunartryggingu er ætlað að tryggja okkar félagsmönnum að laun þeirra muni þróast á sama hátt og laun á almennum vinnumarkaði.“

Við útreikning á launaskriði er litið til þróunar á almenna markaðinum annars vegar og hjá félögum í BSRB hins vegar á tímabilinu frá nóvember 2013 til nóvember 2016.Niðurstöður útreikninga fyrir þetta tímabil sýna að hækka þarf laun félaga í aðildarfélögum BSRB sem starfa hjá ríkinu um að meðaltali 1,3 prósent.

Laun ASÍ félaga hækka meira

Hækkunin er afturvirk og gildir frá 1. janúar 2017. Laun félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands sem starfa hjá ríkinu munu hækka um að meðaltali 1,6 prósent af sömu ástæðu.

Laun félagsmanna BSRB sem starfa hjá sveitarfélögum taka ekki breytingum að þessu sinni. Ástæðan er sú að laun starfsmanna sveitarfélaga hafa hækkað meira en laun á almennum vinnumarkaði á árunum 2013 til 2016. Launaþróunin verður mæld áfram og leiðrétt vegna áranna 2017 og 2018, ef tilefni reynist til, þegar þær tölur liggja fyrir.