Heppinn ferðalangur mun fá heimsreisu á opnunarhátíð ferðaskrifstofunnar Kilroy á laugardaginn. 10 verðlaun er í boði en stærstu verðlaunin eru án efa heimsreisan að andvirði 400.000 króna. Biðröð er fyrir utan ferðaskrifstofu Kilroy þar sem þrír einstaklingar stytta sér stundir með spilum og spjalli.

Sú sem er fyrst í röðinni mætti seinnipartinn í gær og stefnir á að gista á dýnu fyrir utan ferðaskrifstofuna fram á laugardag. Ef reiknað er með 40% skatti er tímakaupið fyrir biðina tæpar 7200 krónur.

Ferðaskrifstofan Kilroy opnaði fyrir tveimur mánuðum á Skólavörðustíg. Þetta er ferðaskrifstofa fyrir ungt fólk og námsmenn og skrifstofurnar eru alls 18 í sex löndum. Á laugardaginn verður haldið upp á opnunina og auk heimsreisu verða sérstök tilboð á ferðum, afslættir og vinningar.