Mánudaginn 2. maí s.l. lét rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson úr höfn til þátttöku í fjölþjóðlegum leiðangri sem skipulagður er af Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) þar sem markmiðið er að áætla stærð hrygningarstofns makríls í NA-Atlantshafi. Mælingarnar eru mikilvægur hluti af stofnstærðarmælingu og þar með mati á veiðiþoli makrílstofnsins.

Við stofnmatið er beitt svokallaðri eggjaframleiðsluaðferð en hún byggir á að meta fjölda eggja á hrygningarsvæði makrílsins. Hrygningin hefst við strendur Portúgals í febrúar og teygir sig allt norður í íslensku landhelgina og lýkur í byrjun ágúst.

Sýnatakan er þar af leiðandi gríðarlega umfangsmikil en alls koma að henni tíu Evrópulönd (Portúgal, Spánn, Írland, Bretland, Holland, Danmörk, Þýskaland, Noregur, Færeyjar og Ísland) og ellefu rannsóknastofnanir og er hún framkvæmd þriðja hvert ár. Á vegum þessara stofnana eru farnir tuttugu rannsóknaleiðangrar frá því í febrúar og fram í ágúst.

Hafrannsóknastofnun tekur nú þátt í verkefninu í þriðja sinn og verður r.s. Bjarni Sæmundsson við rannsóknir í tvær vikur á hafsvæðinu milli Skotlands og Færeyja.

Bráðabirgða niðurstöður verkefnisins munu liggja fyrir í haust. Leiðangursstjóri á Bjarna Sæmundssyni er Björn Gunnarsson og skipstjóri Ingvi Friðriksson.