Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2016 verður um 18% umfangsmeiri en á þessu ári. Gert er ráð fyrir að farþegar verði um 3,5 milljónir á árinu 2016, og muni fjölga um 450 þúsund frá yfirstandandi ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group.

Flugfélagið mun hefja flug til þriggja nýrra áfangastaða og verður ferðum fjölgað til fjölmargra borga í Norður-Ameríku og Evrópu. Alls verða 26 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, tveimur fleiri en á þessu ári.

Fram kemur í tilkynningunni að framboðnum sætiskílómetrum fjölgi um 18% á næsta ári, en flugferðum í millilandaflugi fjölgi um 14%. Munurinn skýrist annars vegar af auknu vægi flugs á lengri flugleiðum til Norður-Ameríku og hins vegar af því að stækkun flugflotans á næsta ári felist í því að tvær 262 sæta Boeing 767-300 breiðþotur bætist í flota félagsins. Nýju vélarnar taka fleiri farþega en Boeing 757 vélarnar sem félagið notar annars.

Tíðni aukin á fjölmarga áfangastaði

Flogið verður til 42 áfangastaða í leiðakerfinu sem er fjölgun um þrjá staði. Þannig hefst heilsársflug í mars til Chicago í Bandaríkjunum og flug til Montreal í Kanada hefst í maí. Þá hefst flug til Aberdeen í Skotlandi, á Bombardier Q-400 flugvélum Flugfélags Íslands í mars. Icelandair Group segir hins vegar mestu skipta varðandi vöxt leiðakerfisins milli ára að tíðni sé aukin á fjölmarga áfangastaði beggja vegna Atlantshafsins, í Norður-Ameríku og Evrópu.

„Leiðakerfi félagsins hefur nærri þrefaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir, eða 37% þess fjölda sem gert er ráð fyrir á árinu 2016, eða 3,5 milljónum. Leiðakerfið hefur einkum byggt á tengingum á Keflavíkurflugvelli með morgunbrottförum til Evrópu og síðdegisflugi til Norður-Ameríku.

Undanfarin ár hefur félagið verið að byggja upp annan tengibanka, með brottförum laust fyrir hádegi til Norður Ameríku. Stækkunin á þessum tengibanka gefur möguleika á tveimur mismunandi brottfarartímum innan sama dags á áfangastaði, dreifir álagi á Keflavíkurflugvelli og styður vel við aðal tengibankann. Á árinu 2016 verður töluverður hluti vaxtarins utan megintengibankans og utan háannatímans að sumri,“ segir í tilkynningunni.