Um 377 þúsund farþegar fóru um flugvelli landsins á fyrri helmingi árs ef Keflavíkurflugvöllur er frátalinn. Þetta kemur fram á vefsíðu Túrista. Þetta er rúmlega 8 þúsund færri farþegar en á sama tímabili í fyrra. Ef litið er til fyrstu sex mánaða áranna á undan þá hefur fjöldinn í ár verið rétt undir meðaltalinu á þessari öld.

Á fyrri helmingi þessa árs fækkaði farþegum á Reykjavíkurflugvelli um nærri 5 af hundraði en samdrátturinn var minni á Egilsstöðum. Um flugstöðina á Akureyri fóru hins vegar fleiri en á sama tíma í fyrra en horfa verður til þess að 3.525 farþegar flugu milli Akureyrar og Bretlands fyrstu þrjá mánuði ársins samkvæmt tölum frá breskum flugmálayfirvöldum.

Hafa verður í huga að Air Iceland Connect hefur frá því í ársbyrjun í fyrra boðið upp á beinar ferðir frá Akureyri til Keflavíkurflugvallar. Sú þjónusta er aðeins í boði fyrir þá sem eru að koma úr eða á leið í millilandaflug og þar er því ekki um að ræða hefðbundið innanlandsflug. Flugfélagið hefur gert hlé á þessum áætlunarferðum í sumar en tekur upp þráðinn í haust.