Fjöldi farþega Icelandair í júlí nam 519 þúsund og fækkaði þeim um 5% miðað við júlí á síðasta ári.  Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 2%, en framboðnum sætum fækkaði um 3% á milli ára.  Skýrist munurinn af því að með auknu framboði til N-Ameríku hefur meðalfluglengd í km. aukist milli ára, eða sem nemur 5%.

Sætanýting var 85,3% samanborið við við 89,2% í júlí á síðasta ári. Í júlí er sama þróun og var á öðrum ársfjórðungi. Sala á áfangastaði í N-Ameríku hefur ekki fylgt framboðsaukningunni eftir á meðan að sala til Evrópu hefur verið mjög góð.  Til samanburðar þá var sætanýting á leiðum Icelandair í Evrópu 90,7% og jókst um 2,9 prósentustig á milli ára á meðan að sætanýting á leiðum félagsins til N-Ameríku var 81,9% og lækkaði um 8,9 prósentustig á milli ára.  Fjöldi farþega á heimamarkaðinum frá Íslandi og  ferðamannamarkaðinum til Íslands jókst á milli ára, en dróst saman á N-Atlantshafsmarkaðinum.

Farþegar Air Iceland Connect voru tæplega 32 þúsund og fækkaði um 14% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 72,4% og jókst um 2,6 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 7% á milli ára.  Fraktflutningar drógust saman um 6% á milli ára.  Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 9% á milli ára. Herbergjanýting var 84,1% samanborið við 87,4% í júlí 2017.