Í ágúst flutti Icelandair um 529 þúsund farþega og voru þeir 10% fleiri en í ágúst á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 87,9% samanborið við 87,6% á sama tíma í fyrra að því er kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar.

Sætanýting var 72,3% og jókst um 2,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 22% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 35% frá því á síðasta ári, sem skýrist af aukningu í innflutningi til Íslands og flutningum um Ísland á milli Evrópu og N-Ameríku.

Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins dróst saman um 5% samanborið við ágúst í fyrra og herbergjanýting var 88,6% samanborið við 90,3% á síðasta ári. „Eftirspurn bókana með styttri fyrirvara var minni en áætlað var ásamt því að meira var um afbókanir hópa en á sama tíma og í fyrra,“ segir í tilkynningunni.

Einnig var tekið fram að farþegar Air Iceland Connect voru 39 þúsund í ágúst og fjölgaði um 4% á milli ára.  Framboð félagsins var aukið um 3% samanborið við ágúst 2016.