Wow air flutti 201 þúsund farþega til og frá landinu í mars eða um 155% fleiri farþega en í mars árið 2016.

Þá var sætanýting WOW air 91,6% í mars í ár sem er nálægt þriggja prósentustiga aukning á milli ára. Sætanýtingin jókst þrátt fyrir 212% aukningu á framboðnum sætakílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra.

Það sem af er ári þá hefur Wow air flutt um 539 þúsund farþega en það er 180% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.

„Það er ánægjulegt að sjá hversu vel gengur að fjölga ferðamönnum til Íslands yfir vetrarmánuðina en það skiptir máli fyrir ferðaþjónustuna í landinu að álagið dreifist jafnt og þétt yfir alla mánuði ársins.,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.

WOW air flýgur nú til þrjátíu áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku. Stutt er síðan tilkynnt var um nýjasta áfangastaðinn í Bandaríkjunum, Chicago, en flogið verður þangað fjórum sinnum í viku.

Þá hefst einnig flug til Pittsburgh í júní en það er í fyrsta skipti í sögu Íslands þar sem boðið er upp á beint flug þangað.