WOW air flutti 258 þúsund farþega til og frá landinu í október eða um 46% fleiri farþega en í október árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 90% en var 86% í október á síðasta ári. Þetta er þrátt fyrir 42% aukningu á framboðnum sætum á milli ára. Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 2,4 milljónir farþega.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá hvað okkur hefur tekist vel að dreifa álaginu betur allt árið sem endurspeglast í frábærri sætanýtingu núna í október og í bókunarstöðu okkar út árið,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.