„Þetta er auðvitað smá húmor. En auglýsingin hefur vakið mikla athygli og margir stoppa við gluggann,“ segir Friðrik Sigþórsson, sölufulltrúi á Fasteignasölu Akureyrar. Í glugga fasteignasölunnar hefur í nokkra daga verið auglýsing þar sem segir að nú vanti allar gerðir eigna á skrá. Óbeint er vísað til flutnings Fiskistofu frá Hafnarfirði norður í land.

Friðrik segir nóg til af stórum og meðalstórum fasteignum á Akureyri en lítið sem ekkert af smærri eignum.

Hann bendir á að nú sé verið að byggja fjölda íbúða sem komi á markaðinn í haust. En fleiri fasteignir vanti, ekki síst fyrir haustið þegar skólarnir byrja en þá eykst eftirspurnin eftir smærri fasteignum mikið.