Félagið Haldleysi, sem áður hét Fáfnir Holding, var í síðasta mánuði tekið til gjaldþrotaskipta að því er kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Einkahlutafélagið er í eigu Steingríms Erlingssonar, fyrrverandi forstjóra og stofnanda Fáfnis Offshore.

Steingrímur stofnaði Fáfni Offshore árið 2012 og var forstjóri félagsins til ársins 2015, þegar hann var rekinn. Í umfjöllun Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál , segir að Steingrímur var fram til desember 2015 andlit Fáfnis út á við. Nýr framkvæmdastjóri var ráðinn inn til félagsins en í kjölfarið upphófust talsverðar deilur á milli Steingríms og meirihlutaeigenda í Fáfni.

Stjórn Fáfnis hefur tvisvar sinnum ráðist í skuldabréfaútgáfu upp á alls 345 milljónir króna til að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækisins. Þá minnkaði hlutur Haldleysis í Fáfni Offshore úr 21 prósenti í árslok 2015 í rúm tíu prósent, en félagið tók ekki þátt í skuldabréfaútgáfunni. Fáfnir Offshore sérhæfir sig í þjónustu við olíu- og gasborpalla á norðlægum slóðum og rekur skipið Polarsyssel, dýrasta skip Íslandssögunnar.