Fáir ná þeim árangri að verða milljarðamæringar fyrr en þeir ná að minnsta kosti fjörtíu ára aldri en heppnin hefur greinilega elt þá sem ná á lista Business Insider yfir tuttugu efnamestu einstaklingana undir 35 ára aldri í heiminum.

Listi Business Insider var tekinn saman af Wealth-X en á honum má finna fólk sem ýmist hefur erft auðævi sín eða skapað þau sjálf. Hér fyrir neðan er listi yfir fimm ríkustu einstaklingana og hvers virði þeir eru en heildarlistann má finna á vef Business Insider . Ljóst er að sá sem er efst á listanum er nokkuð ofarlega miðað við hina en hann er jafnframt áttundi ríkasti maður í heiminum samkvæmt lista Forbes.

5. Scott Daniel Duncan (32), fimm milljarðar bandaríkjadollara.

4. Eduardo Luis Saverin (33), 5,3 milljarðar bandaríkjadollara.

3. Yang Huiyan (34), 5,9 milljarðar bandaríkjadollara.

2. Dustin Muskowitz (31), 9,3 milljarðar bandaríkjadollara.

1. Mark Zuckerberg (31), 41,6 milljarðar bandaríkjadollara.