Eignarhlutur ríkissjóðs í bankakerfi landsins er ríflega fimm sinnum hærri í dag en fyrir 20 árum síðan. Þetta kemur í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins um starfsemi stofnunarinnar sem gefin var út á dögunum. Í skýrslunni eru umsvif ríkisins á fjármálamarkaði í Evrópu borin saman. Samanburðurinn sýnir hversu Ísland sker sig úr í þessum efnum en að sögn Bankasýslunnar sýnir hann „hversu gríðarlega há fjárbinding ríkissjóðs í eignarhlutum í viðskiptabönkum er í samanburði við önnur ríki Evrópu“.
Þannig kemur m.a. fram að hlutfall íslenska ríkisins í bókfærðu eigin fé við skiptabankanna sem hlutfall af landsframleiðslu hafi verið tæplega 19% í árslok 2016. Hlutfallið var 3,6% í árslok 1997 þegar ríkið átti Búnaðarbankann, FBA og Landsbankann. Til samanburðar var hluturinn á bilinu 1,9-5,4% á ríkjum á borð við Belgíu, Bretland, Grikkland, Holland og Írland á sama tíma. Þegar er litið er til hlutar í bókfærðu eigin fé sem hlutfall af opinberum skuldum sker Ísland sig einnig úr. Hlutfallið er 34,6% hér á landi meðan það er á bilinu 2,2 til 7,2% í samanburðarríkjunum í Evrópu.
Eignarhlutur í bönkunum þremur og einum sparisjóði
Hlutverk Bankasýslu ríkisins er að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, í samræmi við lög og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma, og leggja þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimildar í fjárlögum. Bankasýslan fer auk þess með eignarhluti ríkisins í fyrirtækjum og félögum og sér um samskipti ríkisins við fjármálafyrirtæki sem ríkið á eignarhluti í.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast eintak af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð.