Á árinu 2008 voru fyrstu kaup innan við 10% allra viðskipta með fasteignir á landinu öllu. Á árinu 2015 voru rúmlega 22% allra viðskipta fyrstu kaup, eða um 2.600 íbúðir af u.þ.b. 11.700 íbúða veltu. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem var birt í dag.

Á þessu 8 ára tímabili voru að meðaltali 15% allra fasteignaviðskipta fyrstu kaup. Á sama tímabili fjölgaði fasteignaviðskiptum um 40%, en fjöldi fyrstu kaupa þrefaldaðist á sama tíma.

Kaup fyrirtækja á íbúðum af einstaklingum jukust mikið á árunum 2010 til 2013 en hafa verið stöðug síðustu tvö árin. Á öllu höfuðborgarsvæðinu var sala einstaklinga til fyrirtækja 5,8% allra viðskipta á árinu 2015. Þarna er um u.þ.b. 400 íbúðir að ræða. Ætla má að verulegur hluti þessara íbúða sé ætlaður til útleigu, annaðhvort til ferðamanna eða á innlendum leigumarkaði.

Þrátt fyrir að eftirspurn eftir íbúðum hafi verið töluvert meiri en framboðið þá hefur íbúðafjárfesting ekki þróast í samræmi við aðrar stærðir í hagkerfinu. Íbúðafjárfesting dróst saman á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 saman um 7,7% miðað við sama tímabil 2014.