Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor fór fram í gær. Fimm konur eru í efstu sjö sætum listans. Ásgerður Halldórsdóttir, sitjandi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, leiðir listann, en hún hlaut örugga kosninga í efsta sætið, eða 463 atkvæði af 711.

Listinn er sem hér segir:

  1. Ásgerður Halldórsdóttir
  2. Magnús Örn Guðmundsson
  3. Sigrún Edda Jónsdóttir
  4. Bjarni Torfi Álfþórsson
  5. Ragnhildur Jónsdóttir
  6. Sigríður Sigmarsdóttir
  7. Guðrún Jónsdóttir

Greidd atkvæði voru 711 en þar af voru 26 seðlar auðir og ógildir. Talin atkvæði voru því 685.