Fiskafli íslenskra skipa í september var 108.011 tonn eða 14% minni en í september 2017 sem skýrist aðallega af minni uppsjávarafla. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Botnfiskafli var rúm 35 þúsund tonn eða 7% meiri en í september 2017. Þorskafli var tæpt 21 þúsund tonn sem er 3% minna en í sama mánuði í fyrra. Uppsjávarafli var rúm 69 þúsund tonn og dróst saman um 23%. Af uppsjávartegundum veiddist mest af makríl eða rúm 54 þúsund tonn.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá október 2017 til september 2018 var rúmlega 1.253 þúsund tonn sem er 11% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.

Verðmæti afla í september metið á föstu verðlagi var það sama og í september 2017.