Fiskafli íslenskra skipa í ágúst var tæp 105 þúsund tonn eða 13% minni en í ágúst 2017. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Botnfiskafli var rúm 37 þúsund tonn eða um 2 þúsund tonnum minni en í ágúst 2017. Af botnfisktegundum veiddist mest af þorski eða tæp 18 þúsund tonn sem er 18% minna en í ágúst 2017. Uppsjávarafli nam tæpum 62 þúsund tonnum og dróst saman um 19%. Af uppsjávarartegundum veiddist mest af markríl eða rúm 54 þúsund tonn. Skel- og krabbadýraafli var 2.156 tonn samanborið við 1.274 tonn í ágúst 2017.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá september 2017 til ágúst 2018 var rúmlega 1.389 þúsund tonn sem er 13% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.

Verðmæti afla í ágúst metið á föstu verðlagi var 5% minna en í ágúst 2017.