Fiskafli íslenskra skipa jókst um 40% milli ára í október, en í síðasta mánuði nam hann 114.258 tonnum. Aukningin er að mestu tilkominn vegna meiri síldarafla, en alls veiddust tæp 59 þúsund tonn af síld samanborið við rúm 32 þúsund tonn í október 2016 að því er Hagstofan greinir frá.

Botnfiskaflinn var rúm 42 þúsund tonn og jókst um 5%, sem má að mestu rekja til meiri karfaafla. Afli flatfisktegunda var 1.816 tonn sem er 12% meiri en í október 2016. Skel og krabbadýraafli nam 1.153 tonnum samanborið við 716 tonn í fyrra.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá nóvember 2016 til október 2017 var tæp 1.166 þúsund tonn sem er 8% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr. Verðmæti afla í október metið á föstu verðlagi var 16,5% meira en í október 2016.