Vegna mistaka í prentsmiðju, við prentun Fiskifrétta vikunnar, vantaði fjórar síður í blað dagsins. Hér er um að ræða aftasta kafla þess; blaðsíður 13 til 16. Af þessum sökum verður blaðið endurprentað í prentsmiðjunni Landsprent og leiðrétt útgáfa borin út til áskrifenda á morgun, föstudag.

Áskrifendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum.