Stjórn Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði mótmælir harðlega áformum um stórfellt laxeldi í Fáskrúðsfirði sem nú er í umsagnarferli án þess að fram hafi farið heildarmat á áhrifum þess á lífríki og burðarþol fjarðarins. Samkvæmt fyrirliggjandi frummatsáætlun eru áform um 15.000 tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði sem fylgja munu margvísleg umhverfisáhrif að því er stjórn Loðnuvinnslunnar segir.

Yfirlýsing frá stjórn Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði

Stjórn Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði mótmælir harðlega áformum um stórfellt laxeldi í Fáskrúðsfirði sem nú er í umsagnarferli án þess að fram hafi farið heildarmat á áhrifum þess á lífríki og burðarþol fjarðarins. Samkvæmt fyrirliggjandi frummatsáætlun eru áform um 15.000 tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði sem fylgja munu margvísleg umhverfisáhrif.

Fyrirtækið Fiskeldi Austfjarða hf. hefur nú þegar leyfi fyrir 3.000 tonna framleiðslu á reglbogasilungi/laxi sem ekki er enn farið að nýta og til viðbótar eru í ferli áætlanir fyrirtækisins um 7.854 tonna framleiðsluaukningu í Fáskrúðsfirði. Þá áforma Laxar fiskeldi ehf. 4.000 tonna laxeldi í firðinum en gangi þessi áform eftir stefnir í um 15.000 tonna eldisframleiðslu í Fáskrúðsfirði, sem er sambærilegt og öll eldisframleiðsla í landinu í dag.

Almennt er miðað við að við framleiðslu á einu tonni af laxi verði til úrgangur sem samsvarar klóakrennsli frá átta manns (heimild Landssamtök fiskeldisstöðva) og því jafngildir mengun frá 15.000 tonna laxeldi í Fáskrúðsfirði því að skólpi frá 120 þúsund manna byggð verði veitt óhreinsuðu í fjörðinn.

Loðnuvinnslan hf. er stærsti atvinnurekandinn á Fáskrúðsfirði en þar starfa að jafnaði 150 manns. Hrognavinnsla er mjög mikilvæg í rekstrinum og er á þessu ári yfir 20% af framleiðsluverðmæti fyrirtækisins. Undirstaða þessarar vinnslu er mikið magn af hreinum og ómenguðum sjó sem dælt er úr firðinum. Stjórn Loðnuvinnslunnar gerir alvarlega athugasemd við að ekki var leitað umsagnar félagsins um þessi áform og að hvergi í frummatsskýrslunni er minnst á þann möguleika að mengandi efni frá fyrirhuguðu fiskeldi muni hafa áhrif á gæði sjávarins og þar með hrognavinnslu í Fáskrúðsfirði.

Samkvæmt frummatsskýrslu laxeldisfyrirtækjanna er staðsetning og stærð fyrirhugaðra sjókvía mjög á reiki og er umfangið sýnt allt frá því að vera lítið og til þess að loka nánast firðinum. Þar sem gert er ráð fyrir mestri starfsemi er fjörðurinn um 1300 metrar á breidd og siglingaleiðin innan við 400 metrar. Það er því ljóst að fyrirhugað laxeldi mun þrengja verulega að siglingaleiðum en gott aðgengi skipa er fyrirtækinu lífsnauðsynlegt.

Stjórn Loðnuvinnslunnar furðar sig á að þessi áform hafi verið í undirbúningi í nær 4 ár án þess að umsagna fyrirtækisins hafi verið leitað. Þá er það óskiljanlegt að sveitarfélagið Fjarðabyggð skuli ekki hafa neina lögsögu í máli sem varðar starfsemi sem hefur verið ein af lífæðum Fáskrúðsfjarðar um árabil, heldur er það fjöregg algjörlega á valdi Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar.