Í morgun afhenti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson menntaverðlaun ársins 2017 á menntadegi atvinnulífsins Á Hilton Reykjavík Nordica, sem haldinn var í fjórða sinn í dag.

Hlaut Alcoa Fjarðarál verðlaunin sem menntafyrirtæki ársins 2017 og Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, var valinn menntasproti ársins 2017.

Alcoa Fjarðarál á Reyðarfirði

Alcoa Fjarðarál er stærsta iðnfyrirtæki landsins með um 530 starfsmenn auk fjölda verktaka.

„Fyrirtækið rekur stóriðjuskóla sem er samstarfsverkefni Fjarðaáls, Austurbrúar og Verkmenntaskóla Austurlands en um 50 nemendur stunda nám við skólann á hverjum tíma," segir í fréttatilkynningu um málið.

„Alcoa Fjarðaál og sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa á undanförnum árum unnið að því að efla áhuga ungs fólks á Austfjörðum á verk- og tæknimenntun.

Kennarar lögðu sitt af mörkum og aðstaða til kennslu var bætt, námsframboð á verklegum valgreinum var aukið og nemendur hvattir til nýsköpunar auk þess sem þeim var boðið að heimsækja Fjarðaál og kynna sér starfsemi fyrirtækisins.

Verkefnið heppnaðist mjög vel en fjöldi þeirra sem völdu verk- og tækninám að loknum grunnskóla tvöfaldaðist á aðeins þremur árum. Eitthvað sem atvinnulífið hefur lengi kallað eftir.“

Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og Árni Sigfússon, stjórnarformaður Keilis ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni menntamálaráðherra og Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands.
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og Árni Sigfússon, stjórnarformaður Keilis ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni menntamálaráðherra og Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Keilir er á gamla varnarsvæði bandaríska hersins

Keilir starfar á Ásbrú, gamla varnarsvæði Bandaríska hersins, í Reykjanesbæ en miðstöðin var stofnuð árið 2007. „Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka," segir í tilkynningunni.

„Á aðeins tíu árum hefur tekist að breyta yfirgefinni herstöð í þekkingarþorp. Keilir hefur lyft grettistaki, innleitt nýjar hugmyndir og kennsluhætti og lagt sig fram um að hlusta á þarfir atvinnulífsins og mennta starfsfólk sem eftirspurn er eftir þegar námi lýkur.

Hlutfall háskólamenntaðra íbúa í Reykjanesbæ sem eru eldri en 25 ára hefur meira en tvöfaldast frá 2007 og 85% þeirra sem ljúka námi við Háskólabrú Keilis halda áfram í háskóla en margir þeirra hafa flosnað upp úr hefðbundnu háskólanámi."

Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Fjarðaráls og Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis tóku við verðlaununum fyrir hönd sinna fyrirtækja.

„Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfar um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði," segir í tilkynningunni.

„Í dómnefnd sátu Karen Kjartansdóttir fyrir Samtök atvinnulífsins, Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels sem var Menntafyrirtæki ársins 2016, Sigurður Steinn Einarsson sérfræðingur hjá Síldarvinnslunni á Neskaupstað sem var Menntasproti ársins 2015 og Ragnheiður H. Magnúsdóttir viðskiptastjóri hjá Marel.“