Danski fjármálaráðherrann, Kristian Jensen, sagði á málþingi fyrir stuttu að að Bretar væru ekki í stöðu til þess að kúga Danmörku eða önnur ríki Evrópusambandsins í samningaviðræðum um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Frá þessu er greint í frétt Politiken .

Fjármálaráðherrann bætti við að það væru tvær tegundir Evrópuríkja: Annars vegar smáríki og hins vegar þjóðir sem hafi ekki enn áttað sig á því að þær séu smáríki. Sendiherra Breta í Danmörku var vita óánægður með athugasemdir ráðherrans og sagði að það hann sæi ekki fram á það að völd Breta hafi minnkað á alþjóðasviðinu.

Hann benti á að Bretar væru enn meðlimir í G7 og G20 sem sýndi fram á að Bretar væru langt frá því að vera einhvers konar smáþjóð. Gert var ráð fyrir að samningaviðræður Breta og ESB hefðust 19. júní næstkomandi vegna stjórnarmyndunarviðræðna sem standa enn yfir í Bretlandi.