Fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækið Fjarskipti hf. hefur náð samningum við fasteignafélögin EIK og Reiti um framtíðarhúsnæði sameinaðrar starfsemi. Fjarskipti hf. eru í dag með allt húsnæðið að Suðurlandsbraut 8 til afnota og munu nú bæta við sig rými í hluta hússins að Suðurlandsbraut 10, undir starfsemi fréttastofu og íþróttadeildar.

Um er að ræða hluta annarrar hæðar og þriðju hæð að Suðurlandsbraut 10 og samliggjandi bakhús við Suðurlandsbraut 10 sem tilheyrir Ármúla, nánar tiltekið bakhús á lóð Hótels Íslands. Þar með verður hægt að sameina alla starfsemi á sama stað á árinu, þar með talin mynd- og hljóðver.

Markmiðið er að tilfærsla núverandi eininga sem hýst eru á Suðurlandsbraut 8 hefjist á allra næstu vikum. Uppsetning hljóð- og myndvera getur svo hafist strax í kjölfarið, en þangað flyst starfsemi Stöðvar 2 og útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, FM 957 og X-ið.

Stefnt er að því að stór hluti miðla, meðal annars útvarpsstöðvar, geti hafið flutninga í maí 2018. Aðstaðan að Suðurlandsbraut 10 ætti að vera tilbúin til notkunar í haust. „Það er stór áfangi í sameiningunni að hafa náð skýrri áætlun í húsnæðismálum sem mun hjálpa okkur að skapa nýtt kraftmikið og sameinað fyrirtæki,“ segir Stefán Sigurðsson forstjóri Fjarskipta hf.

„Nú brettum við upp ermar og vinnum saman að því að klára þetta stóra verkefni hratt og vel og áður en við vitum af verðum við komin á einn stað með frábæra vinnuaðstöðu og tækifæri til framtíðar.“