Það er magnaður kosningabragur á lista umfjöllunarefna fjölmiðla, þar kemst ekkert að nema pólitíkin. En síðan horfir maður á viðmælendalistann, þar sem aðeins er að finna einn einasta atvinnumann í pólitík, svo engu er líkara en að ljósvakamiðlarnir hafi ákveðið að sniðganga stjórnmálamenn með virkum hætti. Kosningabaráttan hefur um margt verið óvenjulegt, en við þessu hefði enginn búist.

Þó það beri minna á stjórnmálamönnum í fjölmiðlum nú en endranær í kosningabaráttu má eftir sem áður lesa eitt og annað í hlutfallstölur um viðmælendur ljósvakamiðla. Hér að ofan eru tíndar til tölur um viðtöl stjórnmálaleiðtoga undanfarnar átta vikur (tölur um Benedikt Jóhannesson eru látnar standa, þó að formannaskipti hafi orðið í Viðreisn). Þar má eiginlega tala um deildaskiptingu. Og líklega geta einhverjir eygt einhverjar flokkslegar hneigðir í því líka.