Aflaverðmæti íslenskra skipa dróst saman um fjórðung í febrúar miðað við á sama tíma í fyrra. Nam það tæpum 12,2 milljörðum króna en í febrúar 2016 var aflaverðmætið 16,3 milljarðar.

Rekja má samdráttinn til minni uppsjávarafla en hann var einungis 1,4 milljarða virði í febrúar í ár meðan hann nam 6 milljörðum ári fyrr. Verðmæti botnfisks jókst hins vegar um 4,2% milli ára og nam 10,2 milljörðum í febrúar á þessu ári. Að sama skapi jókst verðmæti flatfiskaflans um 23% milli ára og var að andvirði um 500 milljónir.

Ef miðað er við 12 mánaða tímabil frá mars 2015 til febrúar 2016 jókst aflaverðmætið um 2,3% miðað við sama tímabil ári fyrr. Jókst aflaverðmæti botnfisks um 10,4% og flatfisks um 46,9% meðan verðmæti uppsjávarafla dróst saman um rúman fjórðung eða 25,6%.