Aukinn kraftur verður lagður í rannsóknir mála tengdum peningaþvætti hjá skattrannsóknarstjóra, að því er kemur fram í frétt á vef Skattrannsóknarstjóra ríkisins. 1. janúar sl. tóku gildi lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en með innleiðingu laganna vilja stjórnvöld leggja meiri áherslu á málaflokkinn.

Með lögunum er lögð skylda á aðila, sem stunda starfsemi er kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka, að þekkja deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra og tilkynna um það til lögbærra yfirvalda vakni grunur um eða verði þeir varir við slíka ólögmæta starfsemi,“ segir jafnframt í fréttinni

Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu tekur á móti tilkynningum um viðskipti þar sem grunur er um peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka. Lögreglan miðlar svo málunum m.a. til skattrannsóknarstjóra ríkisins og hefur honum borist tæplega 40 slíkar greinar frá árinu 2016 . Á árinu 2018 var rannsókn lokið í 6 málum sem eiga uppruna til greininga frá Skrifstofu fjármálagreininga lögreglunnar, en þessar rannsóknir eru oft umsvifamiklar og tímafrekar. „Gera má ráð fyrir að ríkissjóður hafi orðið af á annað hundrað milljónum í skatttekjur einungis af þessum sex málum,“ segir í frétt á vef Skattrannsóknarstjóra ríkisins.