FL Group hefur aukið hlut sinn í þýska bankanum Commerzbank AG í 4,25%, en fyrir átti félagið 3,24% í bankanum. Miðað við lok dags 25. september, er markaðsvirði heildareignar félagsins í bankanum um 69 milljarðar króna.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að afkoma bankans hefur verið mjög góð á árinu og stjórnendur staðið við fjárhagsleg markmið sín fyrir árið í heild. Búist er við að arðsemi bankans haldi áfam að aukast og telja tjórnendur FL Group því góð tækifæri felast í kaupunum.

Kaupin eru fjármögnuð með framvirkum samningum og eigin fé.