Um fimmtungur á leigumarkaði leigir hjá ættingjum eða vinum, en einungis 17% heimila á Íslandi eru á leigumarkaði þó það hlutfall fari stækkandi. Fleiri leigjendur geta nú safnað sér sparifé en var árið 2015 þó meirihluti leigjenda geti það ekki að því er fram kemur í nýrri könnun sem birt var á húsnæðisþingi Velferðarráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs sem haldið er í dag á Nordica hótel.

Þar kemur jafnframt fram að meirihluti leigjenda sé á leigumarkaðnum af nauðsyn og að 80% þeirra vilji kaupa sér íbúð, en einungis 14% þeirra vilja vera á leigumarkaði. Hins vegar eru 57% þeirra á leigumarkaði af nauðsyn, en ungt fólk, námsmenn og öryrkjar eru þeir sem eru sérstaklega líklegir til að leigja.

Fólk fast á leigumarkaði

Una Jónsdóttir hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs, sem kynnti niðurstöðurnar segir að eftir því sem tekjur leigjanda séu lægri, því minni líkur eru á að þeir geti lagt fyrir. Sem dæmi nefnir hún að aðeins helmingur leigjenda sé með séreignasparnað sem hún vill meina að sýni meðal annars að úrræði stjórnvalda gagnist þessum hópi lítið.

Staðan á húsnæðismarkaði hefur verið býsna erfið upp á síðkastið. Hækkanir á fasteignaverði hafa tekið fram úr aukningu kaupmáttar og öðrum undirliggjandi stærðum með þeim afleiðingum að fólk sem er að reyna að komast inn á markaðinn kemst ekki að,“ segir Una.

„Það er ánægjulegt að sjá að leigjendur geta í auknum mæli lagt til hliðar en aftur á móti sorglegt að sjá það ekki endurspeglast í aukinni kaupgetu. Fólk á leigumarkaði virðist vera fast þar, gegn sínum vilja eins og staðan er í dag.“