Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup fengi Flokkur fólksins nú fimm þingmenn ef niðurstöður þingkosninga yrðu í samræmi við könnunina, sem gerður var fyrir RÚV.
Hefur flokkurinn meira en tvöfaldað fylgi sitt frá þingkosningunum, en eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um virðist flokkurinn enn að sækja í sig veðrið.
Niðurstöðurnar eru eins og hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn - 26,5%
- Vinstri græn - 21,2%
- Píratar - 13%
- Framsóknarflokkurinn 11,4%
- Samfylkingin - 9,1%
- Flokkur fólksins - 8,4%
- Viðreisn - 5,3%
- Björt framtíð - 3,7%