Rússnesk stjórnvöld geri ekki lengur kröfu um að íslenskir flugrekendur sem vilja nota Síberíuflugleiðina haldi jafnframt uppi beinu áætlunarflugi til áfangastaðar í Rússlandi. Er um að ræða árangur af viðræðum íslenskra og rússneskra stjórnvalda um skilmála rússneskra yfirvalda fyrir yfirflug íslenskra flugvéla yfir Síberíu sem staðið hafa um nokkurt skeið.

Hingað til hafa skilmálar rússneskra stjórnvalda verið mjög strangir og þannig komið í veg fyrir að íslensk flugfélög gætu samið um notkun Síberíuflugleiðarinnar. Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um hafa bæði íslensku flugfélögin, Icelandair, og Wow air, sem nú er að renna inn í það fyrrnefnda, lýst yfir vilja til að vera með beint flug til austurlanda fjær.

Með þessari ákvörðun sem kynnt var á reglulegum samráðsfundi íslenskra og rússneskra stjórnvalda 8. nóvember síðastliðinn, hefur að vissu marki verið greitt fyrir viðræðum íslenskra flugfélaga við viðkomandi aðila um notkun Síberíuflugleiðarinnar.

Flugfélög þurfa enn að semja um gjöld til Rússa fyrir flugið

Íslensk flugfélög sem vilja fá leyfi til yfirflugs munu núna þurfa að semja um yfirflugsgjöld við viðkomandi aðila til að geta hafið flug til Asíu yfir Rússland.

Á fundinum var áfram lögð áhersla á að rússnesk stjórnvöld komi til móts við íslenska matvælaútflytjendur og leiti lausna á innflutningsbanni þeirra vegna þátttöku Íslands í þvingunaraðgerðum vestrænna ríkja í kjölfar átaka í Úkraínu og innlimunar á Krímskaga árið 2014.

Gagnaðgerðir rússneskra stjórnvalda fela í sér mun víðtækara innflutningsbann á matvæli en sértækar og afmarkaðar þvingunaraðgerðir vestrænna ríkja gefa tilefni til. Þá var rætt um aukin viðskipti á öðrum sviðum og því fagnað sérstaklega að íslensk fyrirtæki séu að hasla sér völl í hinum dreifðu byggðum Rússlands, sérstaklega í skipasmíðum og hátækni.