WOW air flutti 106 þúsund farþega til og frá landinu í maí eða um 115% fleiri farþega en í maí árið 2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Sætanýting WOW air í maí var 85% en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 81% en er þetta aukning um fjögur prósentustig.

Sætanýting WOW air jókst milli ára þrátt fyrir 109% aukningu á sætaframboði í maí en félagið hóf áætlunarflug í þessum mánuði til fjögurra nýrra áfangastaða. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 110% í maí frá því á sama tíma í fyrra.