Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að hækka svokallaðan sveiflujöfnunarauka á fjármálafyritæki úr 1,25% í 1,75% á innlendar áhættuskuldbindingar fjármálafyrirtækja. Fjármálastöðugleikaráð mældi með því í apríl að FME hækkaði sveiflijöfnunaraukann og mun hækkunin taka gildi eftir ár.

FME bendir á að megintilgangur sveiflujöfnunaraukans sé að auka viðnámsþrótt fjármálakerfisins við hugsanlegu tapi í kjölfar aukinnar sveiflutengdrar kerfisáhættu. Þá er hugsunin að sveiflujöfnunaraukinn verði lækkaður í niðursveiflu og veiti þannig fjármálafyrirtækjum svigrúm til að viðhalda framboði útlána þó aðstæður í fjármálakerfinu breytist.

„Samfelldur skuldavöxtur heimila og fyrirtækja síðastliðið ár bendir til þess að sveiflutengd kerfisáhætta hafi aukist. Húsnæðisverð hefur vikið nokkuð frá undirliggjandi þáttum á sama tíma sem jafnframt bendir til aukinnar kerfisáhættu. Þar að auki hefur áhætta einnig aukist innan afmarkaðra geira sem ekki er unnt að bregðast við með sértækum aðgerðum að svo stöddu,“ segir í frétt á vef FME.

„Í tilmælum fjármálastöðugleikaráðs er sérstaklega bent á sterkan upptakt í fjármögnunarsveiflunni og samspil útlána vegna atvinnuhúsnæðis og fasteignaþróunarverkefna og hás verðs á þeim markaði. Einnig er bent á að eftirlitsaðilar eigi, í bili að minnsta kosti, erfitt með að meta þörf fyrir beitingu sértækra stjórntækja vegna húsnæðismarkaðar og áhrif af beitingu slíkra stjórntækja. Verði mögulegt að bregðast við fyrrgreindum áhættuþáttum með sértækum úrræðum á næstu misserum mun Fjármálaeftirlitið kanna hvort tilefni sé til að beita þeim og meta hvaða áhrif það hefur á gildi sveiflujöfnunarauka. Slík endurskoðun gæti átt sér stað fyrir gildistöku ákvörðunar um hækkun sveiflujöfnunarauka,“ segir jafnframt í frétt FME.