Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup Vátryggingarfélags Íslands á 21,8% hlut í Kviku banka hf. en stofnunin telur félagið hæft til að fara með allt að 33% eignarhlut í bankanum.

Jafnframt telur FME tryggingafélagið hæft til að fara með allt að 33% virkan eignarhlut í Akta sjóðum hf. og Júpiter rekstrarfélagi hf. með óbeinni hlutdeild segir í tilkynningu.

Vísað er til tilkynninga VÍS frá 5. janúar og 6. janúar sl. í tengslum við kaup VÍS á rúmlega fimmtungshlut (21,8%) í Kviku.

Fram kom í þeim tilkynningum að kaupin væru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins á hæfi VÍS til að fara með virkan eignarhlut í Kviku, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Í bréfi Fjármálaeftirlitsins kemur einnig fram að eftirlitið hafi til skoðunar hvort kaup VÍS á eignarhlut í Kviku leiði til þess að félögin myndi fjármálasamsteypu.