Anna G. Sverrisdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fjármála og fjárfestinga Bláa Lónsins hf. Starfið er nýtt innan fyrirtækisins og lýtur að allri fjármálstarfsemi fyrirtækjasamstæðunnar innanlands og erlendis, að því er fram kemur í frétt frá félaginu.

Anna hefur starfað hjá Bláa Lóninu frá árinu 1995. Undanfarin ár hefur hún gegnt starfi framkvæmdastjóra innlendrar starfsemi. Mikil vöxtur og uppbygging hefur einkennt starfsemi Bláa Lónsins undanfarin ár.

Anna er viðskiptafræðingur að mennt. Hún hefur m.a. starfað hjá Vöku Helgafelli, Arnarflugi, Stöð 2 og á Viðskiptablaðinu. Anna er gift Sigurjóni Einarssyni og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn.